# Nesklúbburinn

Nesklúbburinn

Page: <https://rssamplifier.com/nkgolf-is>  
Feed: <https://rssamplifier.com/nkgolf-is.md>

---

## [OPNA COCA-COLA úrslit](https://nkgolf.is/almennt/opna-coca-cola-urslit-2/)

_2026-08-17 · Nesklúbburinn_

Opna COCA-COLA mótið fór fram um helgina. Mótið, sem er elsta opna golfmót á Íslandi, var fyrst haldið 1961 og hefur verið haldið allar götur síðan. Fyrirkomulagið er höggleikur án forgjafar og punktakeppni með forgjöf og voru veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í báðum flokkum ásamt nándarverðlaunum á par 3 brautum. Helstu úrslit urðu eftirfarandi: Höggleikur án forgjafar: 1. ... Read More

## [Metþátttaka í meistaramóti barna og unglinga](https://nkgolf.is/almennt/metthatttaka-i-meistaramoti-barna-og-unglinga/)

_2026-08-14 · Nesklúbburinn_

Meistaramóti barna og unglinga er lokið eftir þrjá skemmtilega keppnisdaga á Nesvellinum. Alls tóku 42 krakkar þátt í mótinu sem er metþátttaka og gekk mótið mjög vel hjá okkar ungu kylfingum. Keppt var í sex flokkum og voru þrjú efstu í hverjum flokki eftirfarandi: Drengir 15–18 ára Heiðar Örn Heimisson – 232 högg Hjalti Garðar Matthíasson – 236 högg Mikael ... Read More

## [Almyrkvinn 12. ágúst &#8211; aðstoð óskast](https://nkgolf.is/almennt/almyrkvinn-12-agust-adstod-oskast/)

_2026-08-07 · Nesklúbburinn_

Kæru félagar, Eins og flestum er eflaust kunnugt um að þá verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi, miðvikudaginn 12. ágúst, í fyrsta sinn frá því árið 1954. Allar upplýsingar um Almyrkvann má sjá með því að smella hér. Á Nesvellinum mun hann sjást í rúma eina mínútu sem er það mesta á höfuðborgarsvæðinu. Mikill viðbúnaður hefur staðið yfir bæði ... Read More

## [Íslandsmót Golfklúbba haldið á næstu vikum](https://nkgolf.is/almennt/islandsmot-golfklubba-haldid-naestu-vikur/)

_2026-08-07 · Nesklúbburinn_

Íslandsmót Golfklúbba í fullorðinsflokkum verður haldið á næstu vikum. Nesklúbburinn sendir lið í öllum keppnum sem eru eftirfarandi: A-sveit kvenna: Keppt á Höfn í Hornafirði dagana 13.-15. ágúst, liðsstjóri er Þóra Sif Friðriksdóttir A-sveit karla: Keppt í Vestmannaeyjum dagana 13.-15. ágúst, liðsstjóri er Steinn Baugur Gunnarsson 50 ára og eldri kvenna: Keppt í Keflavík dagana 20.-22. ágúst,…

## [Tómas sigraði Einvígið á Nesinu annað árið í röð](https://nkgolf.is/almennt/tomas-sigradi-einvigid-a-nesinu-annad-arid-i-rod/)

_2026-08-03 · Nesklúbburinn_

Einvígið á Nesinu (Shoot out) góðgerðarmótið fór fram á Nesvellinum í frábæru veðri í dag. Þetta var í 30. skiptið sem mótið er haldið og eins og ávallt var það haldið til styrktar góðu málefni tengt börnum. Styrkþegi í ár var Bergið sem er stuðnings og ráðgjafasetur sem veitir ungu fólki einstaklingsmiðaða og gjaldfrjálsa ráðgjöf og stuðning á þeirra forsendum. ... Read More

## [Einvígið á Nesinu fer fram á mánudaginn](https://nkgolf.is/almennt/einvigid-a-nesinu-fer-fram-a-manudaginn-3/)

_2026-07-30 · Nesklúbburinn_

Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu, verður haldið þann 3. ágúst næstkomandi, á frídegi verslunarmanna. Mótið er haldið í samstarfi við Arion banka og er þetta í þrítugasta skipti sem það fer fram. Venju samkvæmt munu nokkrir bestu kylfinga landsins etja kappi hver við annan. Að þessu sinni leika þeir í þágu Bergsins, sjálfstæðra, óhagnaðardrifinna samtaka sem veita ungu fólki ...…

## [Einvígið á Nesinu haldið í 30. sinn](https://nkgolf.is/almennt/einvigid-a-nesinu-haldid-i-30-sinn/)

_2026-07-27 · Nesklúbburinn_

Það verður sannkallað stórskotalið margra af bestu kylfingum Íslands þegar hið árlega góðgerðarmót Nesklúbbsins, EINVÍGIÐ Á NESINU, verður haldið mánudaginn 3. ágúst, á Frídegi verslunarmanna. Mótið er haldið í samstarfi við ARION BANKA og er þetta í þrítugasta skipti sem það fer fram. Venju samkvæmt er nokkrum af bestu kylfingum landsins boðið til leiks og leika þeir að þessu sinni í ... Read…

## [Öldungabikarinn &#8211; úrslit](https://nkgolf.is/almennt/oldungabikarinn-urslit-7/)

_2026-07-23 · Nesklúbburinn_

Öldungabikar Nesklúbbsins lauk í gærkvöldi og var það að lokum Guðmundur Örn Gylfason sem sigraði. Hinrik sigraði alla sína sex leiki og var því krýndur sigurvegari í mótslok. Hástökkvari mótsins var Ásgeir Guðmundur Bjarnason en hann hoppaði upp um 25 sæti í umferðunum sex sem er frábær árangur. Við óskum þeim innilega til hamingju með sigrana.

## [Öldungabikarinn &#8211; staðan eftir fjórar umferðir](https://nkgolf.is/almennt/oldungabikarinn-stadan-eftir-fjorar-umferdir/)

_2026-07-22 · Nesklúbburinn_

3. og 4. umferð í Öldungabikarnum fór fram í gærkvöldi. Öldungabikarinn hefur svo sannarlega fest sig í sessi þar sem spiluð er holukeppni þar sem keppendur raðast upp eftir monrad fyrirkomulagi sem betur er þekkt í skákheiminum. Þrjátíu og níu þátttakendur mættu til leiks og er staða efstu keppenda eftir 2. keppnisdag eftirfarandi: Guðmundur Örn Gylfason – 4 vinningar Ásgeir ... Read More

## [Your 24/7 AI Media Buyer (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/Ucd8xAiWAaKM)

_2026-07-22 · **Sponsored**_

Finds placement, geo, and funnel leaks and proposes fixes you approve

## [Öldungabikarinn &#8211; staðan eftir 1. og 2. umferð](https://nkgolf.is/almennt/oldungabikarinn-stadan-eftir-1-og-2-umferd/)

_2026-07-21 · Nesklúbburinn_

1. og 2. umferð í Öldungabikarnum fór fram í gærkvöldi. Öldungabikarinn hefur svo sannarlega fest sig í sessi þar sem spiluð er holukeppni þar sem keppendur raðast upp eftir monrad fyrirkomulagi sem betur er þekkt í skákheiminum. Þrjátíu og níu þátttakendur mættu til leiks og er staða efstu keppenda eftir 1. dag er eftirfarandi: Guðmundur Örn Gylfason – 2 vinningar ... Read More

