Það er skrýtið að hugsa sér að allt verði dimmt um hábjartan dag. Það gerist við almyrkva sólar. Fólk sem upplifir almyrkva gleymir því seint. Eruð þið ekki að verða spennt? Sólmyrkvinn sem verður 12. ágúst 2026 sést um allt land, en almyrkvi verður einungis sýnilegur vestast á landinu, meðal annars í Reykjavík. Það er einstakur atburður. Síðast varð almyrkvi á Íslandi 30. júní 1954 og sást hann…
Í vor birtist frétt hér á vefnum um humlu sem var alsett humlumítlum. Í dag heyrum við um rauðhumlu sem ekki er rauð! Fólk hefur tekið eftir flugum, víðs vegar í Reykjavík, sem eru svartar en líkjast að öðru leyti humlum. Sérfræðingar hafa tegundagreint þessar flugur og er um að ræða rauðhumlur með óvenjulega mikið svart litarefni. Að auki segja þeir að þeim svörtu sé að fjölga hér hlutfallslega.…
Túnfíflar eru mjög áberandi á grasflötum og víðar í borgarlandinu þessa dagana. Gul blómin brosa á móti sólinni, en biðukollur eru líka áberandi. Fíflar eru af körfublómaætt . Hin eiginlegu blóm eru samsett úr einu löngu gulu blaði og æxlunarfærum (fræflum og frævu). Þessi litlu blóm vaxa saman í „körfu“. Í almennu tali, þegar rætt er um blóm fífilsins , er jafnan átt við körfurnar. Já, blómin…
Nú eru ungarnir farnir að skríða úr eggi. Þessir krúttlegu stokkandarungar og mamma þeirra eru á Tjörninni í Reykjavík og hafa það gott. Nóg er að éta í leirnum, en ungarnir lifa aðallega á smádýrum, til dæmis rykmýslirfum og rykmýi fyrstu vikurnar. Það er líka gott fyrir litla unga að geta falið sig í hávöxnum gróðrinum. (Friðbjörg Ingimarsdóttir tók myndbandið. Hin myndin sýnir rjúpuunga (SH).)…
Þegar farið er í vettvangsferð er ástæða til að hafa augun opin. Hér á myndinni er til dæmis nýlega dauð humla (eða hunangsfluga). Þið kannist eflaust við þær. Hvað olli dauða hennar er ekki vitað. En sjáið þið allar litlu pöddurnar? Þessar litlu pöddur kallast humlumítlar og lifa í búum humla, sem eru ofan í jörðinni. Ungviði humlumítla nærist á lífrænum leifum sem fellur til í búinu. Þannig…
Gæsin lengst til hægri er helsingi - (SH). Vefhöfundur varð steinhissa þegar hún gekk fram á helsingja við suðurströnd Reykjavíkur, neðan við Starhaga í gær 15. apríl. Hún var heppin að vera með myndavélina sína og gat því sannað þennan fund. Helsingjar eru nefnilega sjaldséðir suðvestanlands. Þarna var helsinginn í hópi grágæsa , beit gras af mikilli áfergju og fékk sér líka vatn að drekka úr…
Plokkað rusl í Vatnsmýri - (SH). Að vori til, ár hvert, er skipulagður hreinsunardagur í Vatnsmýri af Hollvinum Tjarnarinnar (Norræna húsinu og félaginu Fuglavernd). Slíkur dagur var einmitt um helgina. Þó nokkrir sjálfboðaliðar mættu og hirtu upp fjölbreytt rusl sem væntanlega hefur meira og minna fokið inn á svæðið. Þar sem sumt af ruslinu hafði endað ofan í síkjum og tjörnum var gott að…
Í dag, 20. mars, eru vorjafndægur. Það er sú stund þegar sól er beint yfir miðbaug Jarðar. Alls staðar í heiminum eru dagur og nótt jafnlöng núna. Héðan í frá lengir daginn á norðurhveli alveg fram á mitt sumar. Á Íslandi er ekkert náttmyrkur um hásumarið! Þótt enn sé kuldalegt má víða sjá merki vorkomu í náttúrunni. Hér eru dæmi: Lóan er komin, svartþrestir eru farnir að para sig og krókusar að…
Þegar jólatréð á Austurvelli var tekið niður um daginn kom í ljós nýlegt svartþrastar hreiður með eggjum. Í samanburði við aðra fugla fara svartþrestir snemma að huga að varpi og hreiðurgerð. Nú þegar má heyra fuglana syngja, en söngurinn á bara eftir að aukast eftir því sem lengra líður. Hann er oft áberandi mjög snemma á morgnana. Söngur gegnir hlutverki þegar fuglarnir helga sér óðal og við…
Þið hafið eflaust tekið eftir kuldanum sem hefur verið undanfarna daga og er spáð áfram. Við sjáum víða klaka og ís. Okkur þykir óþægilegt að verða kalt og stundum er sagt að frostið bíti. Já, það bítur þar sem skín í bera húð, til dæmis í kinnarnar. Eins verður okkur gjarnan kalt á höndum og fótum, jafnvel svo kalt að okkur verkjar. Athuga hitastig dagsins. Mér verður heitt þegar ég er á skíðum.…