Miðfjarðará rauf þúsund laxa múrinn í vikunni og hafa 1.080 laxar veiðst í ánni sem af er sumri. Á sama tíma í fyrra voru 770 laxar komnir á land. Blanda er komin í 415 laxa en í fyrra veiddust aðeins 54 laxar í ánni og munar um minna. Laxá á Ásum er komin í 333 laxa sem er svipuð veiði og á sama tíma í fyrra. Víðidalsá stendur í 291 laxi og Vatnsdalsá í 235 löxum og eru báðar árnar að gera betur…
Frá því að fyrstu fjárlög núverandi ríkisstjórnar tóku gildi um síðustu áramót hefur verðbólgan farið vaxandi og stýrivextir hækkað. Fram að því fóru vextir lækkandi á grundvelli fjárlaga síðustu stjórnar. Ríkisstjórnin hefur ítrekað tekið ákvarðanir frá áramótum sem hafa stuðlað að aukinni verðbólgu og hefur sama og ekkert gert til þess að forða því að kjarasamningar verði í uppnámi síðar í…
Sveitarstjórn Skagastrandar ætlar að hefja markvissa vinnu við að fjölga atvinnutækifærum fyrir fólk með skerta starfsgetu í sveitarfélaginu. Málið var lagt fram nýverið í sveitarstjórn af K‑listanum en á sveitarstjórnarfundi í gær var lögð fram breytingartillaga þess efnis að ekki yrði sett fram sérstök tímasett aðgerðaráætlun, heldur yrði unnið áfram með reglulegri endurgjöf. Sú tillaga var…
Sveitarstjórn Skagastrandar hefur ákveðið að fela sveitarstjóra og varaoddvita að hefja undirbúning og sækja um fyrir hönd sveitarfélagsins þátttöku í verkefninu Heilsueflandi samfélag. Verkefnið er unnið í samstarfi við Embætti landlæknis og hefur víða reynst mikilvægt tæki til að efla lýðheilsu, styrkja forvarnir og samræma starf ólíkra aðila innan samfélagsins. Tillagan kom frá Framsókn og…
Kormákur Hvöt náði ekki að sigra topplið Hauka á Blönduósvelli í kvöld en þá var leikið í 2. deild á Íslandsmóti karla í fótbolta. Gestirnir skoruðu fyrstu tvö mörkin leiksins á 10. mínútu og 18. mínútu en Guzman Díaz Scarone minnkaði muninn fyrir heimamenn á 24. mínútu. Hvorugt liðið náði að skora fleiri mörk og endaði leikurinn því með sigri Hauka 2-1. Þetta var annar tapleikur Kormáks Hvatar í…
Góða messu á Mælifelli/ og móttökurnar þökkum vér. Sælugeislum sínum helli / sólin yfir staðinn hér. SBE. Stólinn bælir stundargestur / stakk við hæl á svellinu. Engan fælir Ágúst prestur / undan Mælifellinu. RBS. Mælifellskirkja er orðin aldargömul og afmælishátíð í vændum þar og í Árgarði um næstu helgi, þetta frétti ég síðastliðinn sunnudag vestur í Dagverðarnesi v/Hvammsfjörð, en þar var…
Við hefðbundið umferðareftirlit síðastliðið fimmtudagskvöld stöðvaði lögreglan á Norðurlandi vestra bifreið á suðurleið vegna gruns um of hraðan akstur en í henni voru þrír erlendir ríkisborgarar. Ökumaður framvísaði ökuskírteini, en ekki var unnt að staðfesta hverjir hinir farþegarnir voru þar sem þeir kváðust ekki vera með skilríki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi…
Búið er að framlengja umsóknarfrest vegna Skúnaskralls - barnamenningarhátíðar Norðurlands vestra, en tekið verður við umsóknum til og með 24. ágúst. Eins og vonandi öllum er kunnugt mun barnamenningarhátíðin Skúnaskrall fara fram dagana 21. október til 4. nóvember 2026 undir yfirskriftinni Öll saman. Hátíðin er haldin á vegum SSNV í góðu samstarfi við sveitarfélögin á Norðurlandi vestra og er…
Í ágúst og september ætlar hljómsveitin Moses Hightower að vera víða við fimmta mann og spila sig í fyrsta sinn hringinn í kringum landið í einni rispu. Það verður allt að frétta; glóðvolg nýútkomin plata í farteskinu og ennþá nýrri lög af annarri í smíðum á prógramminu. Hljómsveiting kemur auðvitað við í Krúttinu á Blönduósi og það verður sunnudaginn 23. ágúst klukkan 16.
Nú styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram aðildarviðræður við ESB. Eðlilega eru margir að horfa í lækkun vaxta og verðbólgu í samhengi við aðildarviðræður, enda er það eitt stærsta hagsmunamál íslenskra heimila og fyrirtækja. Þóroddur Bjarnason prófessor skrifaði grein í vikunni þar sem hann greinir áhrif aðildar að ESB á landsbyggðirnar. Það hafa ekki margir verið að koma inn…