RSS Amplifier

Podcast

Fotbolti.net

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

fotbolti.netSource feed ↗51 episodes

Live Last read · last published · next check

Written by

Latest episodes

Saves to your Listen queue, to pick up on another day or another device.

Enski boltinn - Miklar breytingar hjá Newcastle

Upphitunin heldur áfram fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst á föstudaginn. Núna fáum við að vita meira um stöðuna hjá Newcastle en þar hefur mikið gengið á í sumar. Jón Júlíus Karlsson og Ellert Ingi Hafsteinsson, stuðningsmenn Newcastle, komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og spjölluðu um sitt félag. Þess má geta að Newcastle klúbburinn á Íslandi er með aðalfund sinn 23. ágúst næstkomandi. Hægt…

Play

Uppbótartíminn - Breiðablik rústaði toppslagnum

Það var aldrei spurning í toppslagnum í Bestu deild kvenna þar sem Breiðablik fór í Kaplakrika og vann þar þægilegan sigur. FH var sigurstranglegra liðið fyrir leikinn en Blikarnir gerðu ótrúlega vel og eru núna með þriggja stiga forystu á toppnum. Rætt var ítarlega um þennan stórleik í Uppbótartímanum í dag. Guðmundur Aðalsteinn settist niður í Coke stúdíóinu með Arnari Páli Garðarssyni og…

Play

Enski boltinn - Það á að vera gaman að horfa á Liverpool

Við höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst næstkomandi föstudag. Liverpool tók þá ákvörðun eftir síðasta tímabil að reka Arne Slot og ráða Andoni Iraola og núna hefst áhugaverður kafli hjá félaginu. Það á að vera skemmtilegt að horfa á Liverpool en það var ekki raunin að mestu leyti undir stjórn Slot. Stuðningsmenn vonast til að það verði breyting á því undir stjórn Iraola.…

Play

Harkið - VÖK sýningin

Harkið fór yfir stærstu atvikin í sautjándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3. deild: 07:30 Uppgjör 2. deild: 42:58 Spá: 01:27:52 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

Play

38 umferðir - Síðasti upphitunarþátturinn áður en fantasy fer af stað á föstudag

Þriðji þátturinn af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á samfélagsskildinum, helstu leikmönnum sem þeir eru að íhuga fyrir umferð 1 og fóru yfir liðin sín eins og þau líta út í dag, þó vissulega muni margt breytast…

Play

Innkastið - Rokk og ról í Vesturbæ

Innkastið eftir 19. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Maggi Hödd, Magnús Haukur Harðarson. Sex marka jafntefli á fullum Meistaravöllum, Víkingar stöðvuðu göngu FH, Fram vann Stjörnuna, KA og Valur gerðu átta marka jafntefli, ÍA vann í Eyjum og Þór tapaði fyrir vængbrotnu Keflavíkurliði.

Play

Útvarpsþátturinn - Gluggadómar, fyrirliðinn í Krikanum og enski að byrja

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Skoðað er hvaða félög gerðu bestu hlutina í sumarglugganum, hitað upp fyrir næstu umferð í Bestu deildinni, rætt um Evrópuleiki Víkings og Vals og Lengjudeildin skoðuð. Í seinni hluta þáttarins er Ísak Óli Ólafsson fyrirliði FH á línunni og Daníel Geir Moritz ræðir um enska boltann sem er að rúlla af…

Play

Enski boltinn - Næsta skref hjá Aston Villa eftir Evróputitilinn

Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Þeir Jón Haukur Baldvinsson og Bjarni Gaukur Sigurðsson komu í Coke stúdíóið til að ræða um sitt uppáhalds félag, Aston Villa. Aston Villa vann Evrópudeildina á síðustu leiktíð og fer núna…

Play

Enski boltinn - Chelsea fór úr mesta lúðanum í mesta töffarann

Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Í dag er komið að því að heyra frá stuðningsmönnum Chelsea, þeim Stefáni Marteini og Haraldi Erni. Þeir mættu í Coke stúdíóið og fóru yfir stöðu mála. Xabi Alonso er tekinn við stjórnartaumunum…

Play

38 umferðir - Yfirferð yfir öll 20 liðin í deildinni og skoðum liðsuppstillingar með og án Haaland

Annar þátturinn af 38 umferðum er kominn út en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á öllum 20 liðunum í deildinni og fóru yfir tvær mismunandi uppstillingar hvor sem þeir sjá fyrir sér að stilla upp í fyrstu umferð, eitt lið með Haaland og eitt lið…

Play

Harkið - Slagsmál í Mosó

Harkið fór yfir stærstu atvikin í sextándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. uppgjör 3.deild: 11:17 uppgjör 2.deild: 44:06 Spá:01:28:28 Gatorade bikarinn: 01:33:52 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

Play

Innkastið - KR getur orðið Íslandsmeistari

Innkastið eftir 18. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestasérfræðingur er Gunnar Jarl Jónsson. KR vann stórskemmtilegan stórleik gegn Fram, Víkingar slökuðu á og töpuðu niður forystu, Akureyrarliðin sitja í fallsætum, Stjörnumenn unnu tíu Keflvíkinga og Valur vann Breiðablik.

Play

Uppbótartíminn - Gleði í neðri hlutanum

Magnús Haukur og Arnar Páll settust niður í hljóðver og fóru yfir 15. umferð Bestu deildar kvenna, spáðu í spilin fyrir komandi umferð og ræddu Evrópuævintýri Blika. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.

Play

Enski boltinn - Getur Man Utd barist um titilinn í ár?

Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Í dag er komið að heyra hvað stuðningsmenn Manchester United hafa að segja. Grétar Óskarsson og Orri Freyr Rúnarsson mættu í Coke stúdíóið. Michael Carrick er að fara inn í sitt fyrsta heila…

Play

Útvarpsþátturinn - Stefán Páls og Siggi Raggi

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net í beinni á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltavikuna og það sem er framundan. Sérstakur gestur er Stefán Pálsson. Hitað er upp fyrir komandi leiki í Bestu deildinni, þá sérstaklega stórleik Fram og KR sem verður á mánudag. Einnig er rætt um Luton og St. Pauli. Í seinni hluta þáttarins er Sigurður Ragnar Eyjólfsson á línunni frá Færeyjum en hann hefur…

Play

Enski boltinn - Lífið eftir Guardiola

Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Við byrjum á Manchester City sem endaði í öðru sæti á síðasta tímabili en City hefur gengið í gegnum miklar breytingar í vetur. Pep Guardiola umbreytti félaginu öllu en hann er núna horfinn á…

Play

38 umferðir: Nýtt hlaðvarp Fótbolta.net um draumaliðsleik enska boltans

38 umferðir er nýtt hlaðvarp fotbolta.net um Fantasy Premier League, draumaliðsleik enska boltans. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Fyrsti þáttur tímabilsins fór í loftið í dag. Fantasy Premier League nýtur gríðarlegra vinsælda á Íslandi þar sem yfir 25 þúsund Íslendingar spila leikinn. Albert og Sindri munu vera með þátt eftir allar 38 umferðir tímabilsins, greina frá því…

Play

Innkastið - Norður-kóreskir tilburðir á Akureyri

Innkastið eftir 17. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn fara yfir leikina og alla helstu fréttamolana þar í kring. Deildin er að spilast á mjög áhugaverðan hátt. Eru KA og ÍBV á leiðinni niður? Það er nóg að gerast á skrifstofu Íslandsmeistara Víkings.

Play

Útvarpsþátturinn - Slagsmál og Schram með skikkju

Verslunarmannahelgin 2026. Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er áfram í sumarútgáfu, frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta. Besta deildin, Evrópuleikirnir, Lengjudeildin og í lokin er farið yfir í erlenda fótboltann. Það var slegist í Keflavík, Valur komst áfram í Evrópu og Þróttur vann toppslag Lengjudeildarinnar.

Play

Harkið - Great escape?

Harkið fór yfir stærstu atvikin í fimmtándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. uppgjör 3.deild: 9:20 uppgjör 2.deild: 33:30 spá: 01:02 Gatorade bikarinn: 01:08 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson

Play

Uppbótartíminn - Stór félög í bullandi vandræðum

Þrettán umferðir eru búnar í Bestu deild kvenna og það er kominn tími á nýjan Uppbótartíma. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört komu sér fyrir í hljóðveri og fóru yfir umferðina. Það eru stór félög í vandræðum í deildinni, það er svakalegur pakki að myndast í neðri hlutanum og á toppnum eru tvö lið jöfn. Hvað gerist áður en glugginn lokar. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.

Play

Innkastið - Stefnir í trylltan dans í neðri hlutanum

Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Páll eftir 16. umferð Bestu deildarinnar. Er komin einhver hræðsla í liðin? Akureyrarslagurinn olli vonbrigðum, Stjörnumenn hörmulegir gegn Skagamönnum og Aron Einar átti stutt innlit.

Play

Harkið - Þrennu VÖK

Harkið fór yfir stærstu atvikin í fjórtándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 06:00 Uppgjör 2.deild: 36:55 Spá: 01:10 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

Play

Útvarpsþátturinn - Bikartöfrar, Evrópustig og Akureyrarslagur

Þátturinn er aftur frumfluttur í hlaðvarpi í sérstakri sumarútgáfu. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir allt það helsta. Hver er bestur í Bestu?, bikargleði Mosfellinga, öflug Evrópuvika, spennandi Akureyrarslagur framundan og er 64 liða HM kannski málið eftir allt saman?

Play

Harkið - Draugavíti í Mosfellsbæ

Play

Uppbótartíminn - FH óstöðvandi og til skammar fyrir Val

Uppbótartíminn snýr aftur eftir stutt sumarfrí. Rætt er um umferðina sem var að klárast í Bestu deildinni en ótrúleg úrslit áttu sér stað á Hlíðarenda og í Kaplakrika í kvöld. Valur og Víkingur eru í fallsæti og það er væntanlega mikið fundað hjá þessum félögum þessa dagana. Á hinum enda töflunnar eru FH og Breiðablik í góðum gír, og þá sérstaklega FH-ingar sem eru óstöðvandi fyrir framan markið…

Play

Kaffispjallið: Uppköst, húðflúr á hálsi og Casillas eða Neuer?

Ásgeir Orri Magnússon, markvörður Keflavíkur, mætti í annan þátt Kaffispjallsins. Farið var yfir hvað leiddi hann aftur í búrið á öðru ári í 2. flokki, skiptin frá Njarðvík til Keflavíkur og hvað virkilega gerðist þegar hann gisti hjá Stefáni Jóni Friðrikssyni.

Play

Innkastið - Breytingar í vændum á Akranesi?

Innkastið eftir 15. umferð Bestu deildarinnar. Valur Gunnars stýrir ferðinni þessa vikuna og með honum eru Sæbjörn Steinke og Jói Skúli. Þórsarar voru fyrstir til að vinna Víkinga í deildinni, Evrópukeppnin er að trufla liðin, KA hélt ekki út manni fleiri og Skaginn í frjálsu falli.

Play

HM hringborðið - Leiðinlegasti úrslitaleikur sögunnar?

Síðasta HM hringborð mótsins. Spánverjar heimsmeistarar og Englendingar hirtu bronsið. Magnús Haukur Harðarson og Kári Snorrason fóru yfir úrslitaleikinn, bronsleikinn og veittu viðurkenningar.

Play

Útvarpsþátturinn - Glugginn galopinn og allir angar úti

Þátturinn er frumfluttur í hlaðvarpi í sérstakri sumarútgáfu. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir allt það helsta. Félagaskiptaglugginn er opinn, íslensk lið að spila um alla Evrópu, heil umferð framundan í Bestu og úrslitaleikur HM er framundan.

Play

HM hringborðið - Sá taktíski féll á prófinu

HM hringborðið á fimmtudegi. Ásgeir Frank Ásgeirsson var gestur í setti og fór yfir undanúrslitin ásamt Kára Snorrasyni. Thomas Tuchel fékk falleinkunn og Spánverjar sigldu þægilega í gegnum stjörnum prýtt lið Frakka. Sömuleiðis var hitað upp fyrir úrslitaleik Argentínu og Spánar sem og bronsleik Frakka og Englendinga.

Play

Harkið - Grenivíkur Grétar

Play

Innkastið - Vandræðaleg vegferð Vals

Innkastið eftir 14. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars. Dómaramistök léku Keflavík grátt, KA vann gríðarlega mikilvægan sigur en illa gengur hjá ÍA, staða Vals versnar eftir tap gegn FH, vonlaus frammistaða Þórs og KR lék sér að ÍBV. Fréttir, slúður og fabúleringar. Lengjudeildin og Evrópuleikir koma líka við sögu.

Play

HM hringborðið: Þarf að minnka skjátímann hjá Alf Inge

Halldór Snær Georgsson og Runólfur Trausti Þórhallsson voru gestir í HM hringborðinu að þessu sinni. Farið var yfir 8-liða úrslitin og rýnt í spilin fyrir æsispennandi undanúrslit.

Play

Árni Vill ræðir heimkomuna - „Þessi geðveiki virðist elta mig“

Árni Vilhjálmsson er genginn í raðir Stjörnunnar á frjálsri sölu frá Al-Taraji í Sádi-Arabíu. Kári Snorrason ræddi við Árna um skrefið heim ásamt því að fara yfir ferilinn úti í atvinnumennsku. Hann ræðir einnig upplifun sína af því að búa og spila í Sádi-Arabíu og Úkraínu á miklum óvissutímum.

Play

Útvarpsþátturinn - Áhugaverð umferð og leikar æsast á HM

Þátturinn er í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Elvar Geir, Tómas Þór og Kári Snorra eru í hljóðveri. Farið er yfir Evrópuleiki Stjörnunnar og Vestra, fréttir vikunnar í íslenska boltanum og hitað upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni. Þá er fjallað um HM þar sem 8-liða úrslitin eru farin af stað.

Play

Cecilía Rán fer yfir allt milli himins og jarðar í nýju hlaðvarpi

Runólfur Trausti Þórhallsson settist niður með Cecilíu Rán, markverði Inter og íslenska landsliðsins. Farið var yfir víðan völl en þrátt fyrir ungan aldur hefur Cecilía Rán upplifað margt á sínum ferli. Kaffispjallið er nýr hlaðvarpsþáttur hér á síðunni þar sem rætt verður við leikmenn um allt milli himins og jarðar. Í fyrstu seríu hlaðvarpsins verður rætt við markmenn og svo vinnum við okkur upp…

Play

Innkastið - Áfall í Evrópusigri

Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór í Innkasti vikunnar. Víkingur vann nauman sigur á Györ en varð fyrir áfalli, Fram gerði jafntefli í Keflavík, Eyjamenn unnu Val og ungstirni Breiðabliks skína skært. Farið er yfir helstu fréttir og slúður.

Play

HM hringborðið - Azteca stóð undir nafni og falleg vinátta forsetanna

Það hefur mikið gengið á í HM heimum undanfarna daga. Þeir Óskar Smári Haraldsson og Haraldur Örn Haraldsson voru gestir í hringborðinu að þessu sinni og fóru yfir helstu tíðindi og úrslit.

Play

Harkið - Írskir dagar kalla

Play

Útvarpsþátturinn - Besta, bestir í Lengju og HM

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 4. júlí. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars. Byrjað er á íslenska boltanum. Besta deildin, tíðindi tengd henni og Víkingur er á leið í erfitt Evrópueinvígi. Svo er það Lengjudeildin sem fær sviðsljósið og opinberað er val á úrvalsliði umferða 1-11. Í seinasta hluta þáttarins er farið yfir 32-liða úrslit HM og spáð í spilin fyrir 16-liða…

Play

HM hringborðið: Söguleg stund fyrir Ronaldo og uppáhalds HM leikmenn

HM hringborðið á föstudegi. Jóhann Páll Ástvaldsson íþróttafréttamaður á Rúv og Óskar Smári Haraldsson þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar voru gestir að þessu sinni. Þeir fóru yfir úrslit síðustu leikja og spáðu í spilin fyrir leikina þrjá sem eftir eru í 32-liða úrslitum. Þá fóru þeir jafnframt yfir sína uppáhalds HM leikmenn.

Play

HM hringborðið: Sævarssynir fara yfir 32-liða úrslitin

Bræðurnir Birkir Már og Aron Elí Sævarssynir voru gestir HM hringborðsins að þessu sinni. Þeir fóru yfir liðna leiki í 32-liða úrslitum og spáðu í spilin fyrir komandi leiki. Þá fór Birkir jafnframt yfir sigur Íslands á Englandi og heimsmeistaramótið í Rússlandi 2018.

Play

Uppbótartíminn í mynd - Kristianstad, pælingar með Nik og slúður

Það er landsleikjahlé í Bestu deild kvenna en við gefum út aukaþátt af Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann, þessa vikuna. Nik Chamberlain, þjálfari Kristianstad í Svíþjóð, er í heimsókn á Íslandi og hann mætti í þáttinn til að fara yfir tíma sinn hjá Kristianstad til þessa. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll Garðarsson og Nik fóru einnig yfir tölfræði úr Bestu deildinni, leikstíla og aðrar…

Play

Innkastið - Hemmi rekinn, Akureyri í frjálsu falli og Blikar nálgast bikar

Innkastið eftir tólftu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn. Hermann Hreiðarsson var látinn taka pokann sinn eftir sigur Vals gegn Þór, Akureyri er í frjálsu falli, Keflavík vann KR og umferðinni lauk með leik ÍA og Fram á Akranesi. Þá er fjallað um sigur Breiðabliks gegn Víkingi í undanúrslitum bikarsins og einnig er Lengjudeildarhorn.

Play

Harkið - Skandall í Sandgerði

Harkið fór yfir stærstu atvikin í 10 umferð 2. og 3.deildar karla og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum auk þess var farið yfir verstu velli í 2. og 3. deild. -Uppgjör 3.deildar - 07:50 -Uppgjör 2.deildar - 37:50 -Spá og leikmaður umferðarinnar - 01:08 :00 Harkið er í samstarfi með Serrano og AB Sportvörum. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

Play

Útvarpsþátturinn - Sá glaðasti og úrvalslið 1-11

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Víkingar voru ekki sáttir þrátt fyrir 4-1 sigur í Kópavogi, úrvalslið umferða 1-11 í Bestu deildinni er opinberað... og líka vonbrigðaliðið! Gestur þáttarins er Óskar Borgþórsson sem hefur verið gjörsamlega frábær með Víkingum. Þá er sigur Íslands gegn Englandi 2016 rifjaður upp og…

Play

Uppbótartíminn - Þrjú lið á leið í titilbaráttu?

Níunda umferð Bestu deildar kvenna kláraðist í gær með tveimur áhugaverðum leikjum. Farið var yfir alla leiki umferðarinnar í Uppbótartímanum í kvöld. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Arnari Páli Garðarssyni og Snæbjörtu Pálsdóttur og þau fóru yfir leikina ásamt öllum helstu sögulínum.

Play

HM hringborðið - Stjörnurnar standa undir nafni

HM hringborðið á miðvikudegi. Kári Snorrason, Elvar Geir og Sæbjörn Steinke fóru yfir úrslit og atburði síðustu daga á heimsmeistaramótinu.

Play

Harkið - Göngutúr í Garðinum

Harkið fór yfir stærstu atvikin í níundu umferð 2. og 3.deildar karla og val á leikmönnum umferðar í báðum deildum. -Uppgjör 3.deildar - 06:00 -Uppgjör 2.deildar - 40:00 -Spá - 01:24 Harkið er í boði Serrano Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson

Play