RSS Amplifier

Podcast

Fókus

Fókus er birtur í hljóði og mynd vikulega á dv.is. Þátturinn er í umsjón Guðrúnar Óskar Guðjónsdóttur.

dv.isSource feed ↗10 episodes

Live Last read · last published · next check

Written by

Latest episodes

Saves to your Listen queue, to pick up on another day or another device.

Saga Dröfn: „Það hrundi allt eftir að hann lamdi mig“

Saga Dröfn Haraldsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún stígur fram og segir sögu sína af kynferðis- og heimilisofbeldi – og upplifun sinni af því þegar íslenska réttarkerfið brást henni, ekki einu sinni heldur tvisvar. Með henni í þættinum er kærasti hennar, Ingólfur Valur Þrastarson, sem veitir henni stuðning á meðan hún ræðir um þung og viðkvæm málefni. Varað er við…

Play

Linda Pé - Lykillinn á bak við varanlegan árangur

Hvers vegna ná svona margir aldrei varanlegum árangri, þrátt fyrir góð áform og áramótaheit? Í Fókus, viðtalsþætti DV, er masterslífsþjálfinn og fyrrverandi fegurðardrottningin Linda Pétursdóttir – betur þekkt sem Linda Pé – gestur vikunnar og fer yfir hvað raunverulega þarf að breytast til að markmið náist. Hún segir vandann ekki liggja í skorti á aga eða þekkingu, heldur í hugsunum okkar og…

Play

Kristín Þóra á rauðu ljósi: „Það var engin leið til baka án þess fá faglega aðstoð“

Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir hefur lengi verið þekkt fyrir mikinn metnað, kraft og fjölbreytt hlutverk á sviði og í sjónvarpi. Undanfarin ár hefur hún hins vegar ekki aðeins tekist á við krefjandi verkefni í starfi, heldur einnig farið í gegnum persónulegt ferðalag. Fyrir um sex árum lenti Kristín í kulnun eftir langvarandi álag, sjálfsniðurrif og stöðuga streitu, sem að lokum leiddi til…

Play

Sigga Ózk: Frá Söngvakeppninni til Wicked

Söng- og leikkonan Sigga Ózk, Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Sigga skaust fram á sjónarsviðið árið 2023 þegar hún tók fyrst þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins. Hún tók aftur þátt ári seinna og komst áfram í úrslit með laginu Um allan alheiminn. Hún hefur einnig getið sér gott orð sem leikkona og talsetti hlutverk Glindu í kvikmyndunum Wicked og Wicked: For…

Play

Áramótaspá Ellýjar Ármanns fyrir 2026

Spákonan og flugfreyjan Ellý Ármanns er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, og jafnframt mætt þriðja árið í röð í sérstakan áramótaþátt þar sem hún spáir fyrir þekktum einstaklingum, íslensku samfélagi og öllu þar á milli. Það kom margt áhugavert fram í þættinum, en samkvæmt Ellý verða miklar breytingar í stjórnmálum, meðal annars mun ný ríkisstjórn taka við í haust og nefnir hún einn flokk…

Play

Margrét Sól: Sagði upp verkfræðistarfinu hjá Össuri til að elta drauminn

Margrét Sól Ragnarsdóttir dúxaði þegar hún útskrifaðist með mastersgráðu í heilbrigðisverkfræði við Háskólann í Reykjavík og tryggði sér draumastarf hjá alþjóðlega tæknifyrirtækinu Össuri. Hún virtist vera á „réttu leiðinni“ en innra með henni var eitthvað sem togaði hana í aðra átt. Í haust tók hún þá stóra ákvörðun um að segja upp starfi sínu og stökkva út í óvissuna til að verða listakona.…

Play

Anna Claessen: Frá kulnun í kraft og ástin sem bankaði óvænt upp á

Markþjálfinn, einkaþjálfarinn og skemmtikrafturinn Anna Claessen er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Þar fer hún opinskátt yfir kulnunina sem hún lenti í árið 2018, hvernig líkaminn reyndi að stoppa hana en hún hlustaði ekki – og hvers vegna margir hunsa þessi skilaboð. Hún talar einnig um fordóma, sérstaklega eldri kynslóðarinnar, fyrir kulnun, álagið sem fylgir nútímalífi og hvers vegna…

Play

Kristinn Aron: Veðmálafíkn tók yfir líf mitt

Þjálfarinn og fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Kristinn Aron Hjartarson, sem verður 39 ára í desember, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Þar ræðir hann opinskátt um veðmálafíkn sem tók yfir líf hans um árabil, meðferðina sem varð vendipunktur árið 2020 og hvernig hann hefur síðan lifað edrú lífi — bæði frá veðmálum og áfengi. Kristinn lýsir spilafíkn sem manískri þráhyggju sem fylgir…

Play

Hildur: „Í febrúar klessti ég á vegg og fór í kulnun í þriðja skiptið á ferlinum“

Tónlistarkonan Hildur Kristín Stefánsdóttir sá fyrir sér að árið 2025 yrði mikið tónlistarár, hún var að gefa út fyrstu sólóplötuna sína í janúar og ætlaði að vera óstöðvandi. En síðan lenti hún harkalega á vegg en ætlaði ekki að trúa því að hún væri að lenda í kulnum í þriðja skiptið. Hildur er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún ræðir um kulnun, ADHD, hvernig hugleiðsla breytti…

Play

Linda Sæberg - Fann sig í spiritúalisma eftir krabbameinsbaráttuna

Linda Sæberg hefur undanfarin ár gengið í gegnum dimma dali en með aðdáunarverðum hætti tekist á við öll vandamál með bjartsýni og von að leiðarljósi. Hún er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún opnar sig um baráttuna við brjóstakrabbamein, áfallasögu sem mótaði líf hennar í tvo áratugi og þá djúpu umbreytingu sem hún gekk í gegnum þegar hún fann styrk í andlegum málum og…

Play