Tvær unglingsstúlkur í Oregon í Bandaríkjunum hafa fengið dæmdar 275 þúsund dali hvor, jafnvirði rúmlega 33 milljóna íslenskra króna, eftir að þær sátu fastar á hvolfi í tívolítæki í 25 mínútur.
Atvikið átti sér stað í Oaks Amusement Park í Portland í júní 2024. Stúlkurnar, Xitlali Gomez-Salais og Evie Yannotta, voru þá aðeins 13 og 14 ára.
Þær voru meðal 28 farþega í tækinu AtmosFEAR þegar það bilaði skyndilega og stöðvaðist. Farþegarnir sátu fastir á hvolfi í um 15 metra hæð og liðu 25 mínútur þar til tókst að koma tækinu aftur niður.
Lýsingarnar á því sem gerðist á meðan eru óhugnanlegar. Í málshöfðun stúlknanna kom fram að farþegar hefðu óttast um líf sitt.
„Þeir öskruðu af ótta um líf sitt, köstuðu upp, grétu, misstu meðvitund og báðu til Guðs í 25 mínútur þar til tækinu var loks komið niður,“ sagði í stefnunni sem fjölmiðillinn Willamette Week fjallar meðal annars um.
Stúlkurnar sögðu atvikið hafa haft langvarandi áhrif á þær, bæði líkamlega og andlega, og að þær hefðu glímt við áfallastreitu í kjölfarið.
Í málshöfðuninni voru rekstraraðilar Oaks Park meðal annars sakaðir um ófullnægjandi viðhald á tækinu. Þá var því haldið fram að farþegarnir hefðu fengið litlar sem engar upplýsingar um stöðuna á meðan þeir sátu fastir á hvolfi.
Oaks Park og ítalski framleiðandi tækisins, Zamperla, höfðu lengi hafnað því að bera ábyrgð á atvikinu. Samkvæmt lögmanni stúlknanna viðurkenndu aðilarnir hins vegar ábyrgð skömmu áður en málið fór fyrir kviðdóm.
Kviðdómur í Multnomah-sýslu komst á miðvikudag að þeirri niðurstöðu að hvor stúlka skyldi fá 275 þúsund dali í bætur, eða um 67 milljónir íslenskra króna.
Alls höfðu níu farþegar höfðað mál vegna atviksins. Hin sjö málin hafa þegar verið leyst með sáttum, samkvæmt OregonLive.
Aðrir farþegar sem voru undir lögaldri þegar óhappið varð geta enn farið í mál vegna þess. Frestur þeirra sem voru fullorðnir þegar atvikið átti sér stað er hins vegar liðinn.

Comments
Nothing yet. Say the first thing.
Sign in to join the conversation.