Sumarleyfi -
Kæru vinir - sr. Oddur Bjarni er kominn í sumarleyfi, en sr. Erla Björk stendur vaktina og einnig er Þórey Dögg djákni starfandi til mánaðamóta komandi. Góðar stundir og Guðs blessun
My Site
Live Last read · last published · next check

Það er þessi árstími - það er komið að útimessunni árlegu í Hánefsstaðareitnum. Sunnudaginn 23. ágúst kl. 13.30 verður sannkölluð sumarstemning þegar við sameinumst í helgihaldi í Hánefsstaðareitnum. Kórinn syngur sumarlega söngva undir stjórn Þórðar organista og sr. Erla Björk leiðir guðsþjónustuna. Ekki er ólíklegt að kleinur og kaffi rati í lundinn líka, svo þar verður allt saman komið sem…
Kæru vinir - sr. Oddur Bjarni er kominn í sumarleyfi, en sr. Erla Björk stendur vaktina og einnig er Þórey Dögg djákni starfandi til mánaðamóta komandi. Góðar stundir og Guðs blessun
Þá er komið að síðustu fermingunni í prestakallinu - en 6. júní kl. 10.30 munu 4 dásemdar ungmenni staðfesta skírnarheitið í Urðakirkju. Við óskum þeim og fjölskyldum þeirra allrar blessunar og hjartanlega til hamingju :)

Um helgina verður sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur að venju og eru sjómannadagsmessur sem hér segir á sunnudaginn kemur: kl. 11.00 í Stærri-Árskógskirkju. Samkór Dalvíkurbyggðar syngur sjómannasöngva og sálma undir stjórn Þórðar organista og sr. Erla Björk þjónar. Blómsveigur verður lagður við minnisvarða um drukknaða sjómenn í lok messu. kl. 11.11 í Hríseyjarkirkju. Við syngjum saman…
Nú er hún sr. Erla Björk okkar komin aftur til starfa að loknu veikindaleyfi, frá og með deginum í dag - 1. júní. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til baka, hennar hefur sannarlega verið saknað ! Og þá hefst síðasti mánuðurinn sem að Þórey Dögg djákni starfar í prestakallinu, en hún lýkur störfum hér í lok júní. Getum við vart nógsamlega þakkað hennar framlag allt frá haustdögum 2025. sr.…

Fermingarmessur í Dalvíkurprestakalli um hvítasunnuhelgina verða sem hér segir: Laugardagur 23. maí Kl. 10.30 fermast 7 ungmenni í Dalvíkurkirkju. Athöfnina annast sr. Oddur Bjarni og Þórey Dögg djákni. Tónlist á höndum Þórðar Sigurðarsonar og Samkórs Dalvíkurbyggðar. kl. 14.00 fermast 3 ungmenni í Hríseyjarkirkju. Athöfnina annast sr. Oddur Bjarni og Þórður Sigurðarson annast tónlist.…


Sunnudaginn 19. apríl verða tvær guðsþjónustur haldnar í prestakallinu og í þeim syngur stærsti kirkjukór sem sögur fara af - en þar leggja saman krafta sína Samkór Dalvíkurbyggðar og kirkjukór Möðruvallaklausturskirkju. Guðsþjónusturnar verða haldnar sem hér segir kl. 11.00 í Dalvíkurkirkju kl. 13.00 í Möðruvallaklausturskirkju Organistarnir og kórstjórarnir Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og Þórður…

Messa verður haldin í Vallakirkju á skírdag 2. apríl, kl. 17.00 - Samkórinn syngur undir stjórn Þórðar Sigurðarsonar og Þórey Dögg djákni og sr. Oddur Bjarni þjóna. Altarið verður afskrýtt í lok messu. Páskadagur kl. 08.00 - Hátíðarguðsþjónusta í Dalvíkurkirkju. Samkórinn syngur undir stjórn Þórðar Sigurðarsonar og Þórey Dögg djákni þjónar. Boðið verður til morgunverðar í safnaðarheimilinu að…

Sunnudagskvöldið 15. mars kl. 20.00 verður guðsþjónusta í Dalvíkurkirkju í anda Mottumars þar sem við hugsum til allra þeirra sem krabbamein hefur sett mark sitt á með einum eða öðrum hætti. Karlakór Dalvíkur annast allan söng af fullum þunga og með hormónin í hámarki! Ingimar Guðmundsson sjúkraþjálfari flytur okkur hugvekju um sína reynslu af því að fá þennan vágest inn í líf fjölskyldunnar…