RSS Amplifier

Þorparinn · Aug 17, 2026

Fáðu þér sígó

0
Sign in to vote or save

Bragi Páll Sigurðarson · Þorparinn

Hér mætir Mikki sjá, - með mjóa rettu, já

Einu sinni las ég rannsókn á því hvers vegna við tryllumst í umferðinni þegar bílar svína á okkur, taka fram úr, fara yfir á rauðu ljósi eða gera eitthvað sem okkur finnst ekki viðeigandi. Ástæðan er ekki bara sú að okkur var sýndur dónaskapur eða einhver braut reglu sem okkur finnst mikilvægt að sé hlýtt. Stærsta ástæðan er sú að við sjáum bílinn ekki sem manneskju. Okkur líður eins og margra tonna járnhlunkur hafi brotið á okkur. Heilinn í okkur er á einum pól vissulega meðvitaður um að það sé manneskja við stjórnina, en á öðrum stað er engin manneskja, bara tæki, hlutur sem gerði eitthvað rangt, og það er auðveldara að algjörlega sturlast út í hlut heldur en manneskju.

Nú erum við Íslendingar enn og aftur að rífast, sem ég held að sé bara fínt. Hollt að vera ósammála og takast á, hafa skoðun á því hvernig þjóðfélagi við lifum í.

Það sem ég held við mættum samt temja okkur aðeins er að vera ósammála án þess að saka fólk um alvarlegan, jafnvel klínískan greindarskort, jafnvel þó viðkomandi ætti hugsanlega best heima á stofnun. Það er einfaldlega ekki þitt að skera úr um. (Nema þú sért akkúrat heilbrigðisstarfsmaður sem sér um að nauðungavista fólk, en í því tilfelli, bara…)

Tip Fedora | Prodigy Roleplay Wiki | Fandom
…*tips fedora* m’lady!

Rökræður á netinu eru nefnilega svo mikið frábrugðnar rökræðum í raunheimum. Þegar við spjöllum saman úti í búð eða í pottunum eru blæbrigði. Svipir. Augngotur. Tónhæð. Við erum að tala við manneskju.

Þegar við rífumst á netinu og hendum Youtube-hlekkjum og falsfréttum í hvort annað erum við ekki að rífast við manneskju. Við erum að rífast við símann okkar. Það eru engin blæbrigði. Engar augngotur. Engin kurteisi. Bara heimskur sími sem er ósammála okkur.

Rannsóknir frönsku lýðheilsuvísindastofnunarinnar CEPREMAC vekja reglulega athygli þar í landi. Nýleg rannsókn þeirra sýndi fram á að í hverfum þar sem Tabac búðir loka eykst stuðningur við hægri öfgaflokka. Og á nákvæmlega sama máta, í hverfum þar sem Tabac búðir opna, þar minnkar stuðningur við sömu flokka.

paris tobacco shop A french sells cigarettes and more. photo – Free City  Image on Unsplash 🇬🇧 🇺🇸 Best Cigar Shop
Tóbak, bjargaðu okkur!

En hvað gerist í Tabac búðum sem vinnur gegn öfgum? Eins og nafnið gefur til kynna hittast þar almennir frakkar og kaupa sér sígarettur, því þeir algjörlega elska að reykja. Þeir kaupa sér líka happaþrennu, kannski bjór, setjast niður, kveikja í rettunni, skafa þrennuna og ræða svo við samborgara sína sem eru að gera það sama. Og hvað gerist þegar við ræðum saman? Við tölum um það sem við erum að hugsa. Og þegar við tölum saman þurfum við sjálf að orða hugsanir okkar og það sem meira er, verja þær fyrir fólki sem er ósammála. Við áttum okkur á því hvort þær eru þess virði að verja. Finnum út úr þessu saman. Með því að tala við fésið á öðru fólki.

Rannsóknir sýna að öfgahægrið þrífst best í einangrun. Hjá eldra fólki sem hittir fáa, hjá ungum einmana mönnum og öðrum sem allt of sjaldan hitta fjölskyldu, vini og það sem mestu máli skiptir ókunnugt fólk sem kannski er ósammála þér og sérstaklega ef það er öðruvísi á litinn.

Svarið við öfgunum er þá að hittast og spjalla saman. Heilsa ókunnugu fólki. Spjalla við manneskjuna sem er fyrir framan og/eða aftan þig í röðinni. Ræða við pottafélaga þína þó þú þekkir þá ekki neitt. Bestu vinum mínum í menntaskóla kynntist ég í reykingarportinu. Fáðu þér sígó! Farðu í reykpásu og spjallaðu við hitt pakkið sem hýrist úti í slagveðri allt árið og ræddu við þau! Þannig finnnum við fyrir hvort öðru. Áttum okkur aftur á því að annað fólk er ekki vont þó það hafi skoðanir sem þú ert ósammála.

Við þurfum nefnilega að geta aðskilið fólk frá skoðunum þeirra. Skoðanir eru bara eins og fatnaður sem við klæðumst. Við getum farið í þær og úr þeim, fengið þær lánaðar og skilað þeim svo í næsta grenndargám ef þær pössuðu ekki. Fólk er ekki fötin sem það klæðist og skoðanir eru ekki fólk.

Enginn breytir um skoðun við að fá skammir eða YouTube-hlekk í fésið á samfélagsmiðlum. En í pottinum eða í reykpásunni gerist eitthvað annað. Þar er manneskjan fyrir framan þig sem þú verður að ræða við þar sem þið svitnið út allri gremjunni í úrvalsgufunni í Breiðholtslaug (sú eina á landinu sem hefur verið verðlaunuð af finnska sendiráðinu) eða nýju gufunni í Vesturbæjarlaug (þó að miðgufan sé náttúrulega þögul!)

Förum í sund. Kveikjum í frelsiskyndlum. Slökkvum á internetinu og ræðum saman augliti til auglitis. Því dægurmál koma og fara — en náungakærleikurinn er sígrænn. Og þeirri skoðun ætla ég aldrei að sleppa takinu af!

Read the original on bragipall.substack.com

Comments

Nothing yet. Say the first thing.

    Sign in to join the conversation.