Þáttur þar sem bestu plötur hljómsveita og tónlistarfólks eru ræddar. Snæbjörn Ragnarsson og dr. Arnar Eggert Thoroddsen höfðu umsjón með þáttum #0001 - #0100. Haukur Viðar Alfreðsson og dr. Arnar hafa haft umsjón frá og með þætti #0101. Baldur Ragnarsson stýrir þættinum.
Fótspor, handbragð og hugsun meistara Gunnars Þórðarssonar liggur bókstaflega út um allt er kemur að íslenskri tónlistarmenningu. Við BP-liðar vottum honum hér virðingu okkar. Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon .
Fáar rokksveitir í sögunni hafa verið jafn áhrifaríkar, dýrkaðar og umdeildar og The Doors. Þar hélt Jim Morrison nokkur um hljóðnema og lak kynþokkinn af hverri sellu hans og það strítt. Besta plata sveitarinnar er plata tvö, Strange Days, og er það doktorinn sem fer fram með það val og er það ekki nema sæmilega umdeilt.
Gleymið Adele, Sam Smith og Rihönnu. Þegar kemur að hreinræktuðum sönghæfileikum eru þessar poppstjörnur eins og kófdrukknir, trallandi fjósamenn á sveitaballi í samanburði við Ariönu Grande. Nei, þeir eru ekki margir poppararnir sem skáka henni á söngsviðinu. En hvernig er músíkin?
Van Halen gerði út frá Kálfatjörníu og er ein algerasta rokksveit sögunnar. Það er allt þarna mætti segja, hæðir, lægðir, partístand, vitleysisgangur, linnulaus ranaímokstur og svo að sjálfsögðu trukkandi rokk og ról sem á fáa sína líka …
Popppönkprinsessan Avril Lavigne toppaði sig tónlistarlega strax á fyrstu breiðskífunni, Let Go (2002). Áhrif hennar sem poppmenningaríkons eru mikil og farið verður í saumana á því öllu saman í brimafullum þætti…
Popptónlist 9. áratugarins var af mörgum talin yfirborðskennd, einnota og vélræn. Það var því sannkölluð „himnasending“ að fá Nýdönsk fram á sjónarsviðið undir lok eitísins. Tónlistin var vönduð, listræn og leitandi. Grípandi án þess að vera eitthvað blöðrupopp. Fullorðna fólkið var mætt í partíið.
Ein merkasta jaðarþungarokkssveit allra tíma, Faith No More, er á borði Bestu plötunnar þessa vikuna. Sitt sýnist hverjum um uppsöfnuð afrek hennar og voru umræðurnar fróðlegar svo ekki sé meira sagt!
Doppóttu míkrótónal-gosarnir í Angine de Poitrine voru óþekkt stærð í upphafi árs. Rúmum mánuði síðar voru þeir á allra vörum — og hæpið stendur enn yfir. En er eitthvað í þessu? Taktu þátt í umræðunni á Besta platan - Umræðuhópur . Styddu við Bestu plötuna, komdu í áskrift á Patreon og fáðu tvöfalt fleiri þætti.
Í þessum þætti heiðrum við minningu hins eina sanna Björgvins Halldórssonar sem varð bráðkvaddur á heimili sínu í Hafnarfirði þann 9. apríl síðastliðinn. Blessuð sé minning þessa risa íslenskrar dægurtónlistar.
Nick Drake lést langt fyrir aldur fram, hafandi ekki hugmynd um þau áhrif sem stuttur tónlistarferill hans myndi hafa á fjölmargar kynslóðir á eftir honum. Þriðja og síðasta platan hans, Pink Moon frá 1972, er sú besta. Athugið að í þessum þætti er fjallað um sjálfsvíg. Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins á…